En í sömu byggð voru hirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar. Og engill Drottins stóð hjá þeim, og dýrð Drottins ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög hræddir.@Lúkasarguðspjall 2:8-9
andlitsmynd
Sveinbjörn Egilsson
1791–1852

Josef Mohr, á árunum 1816-1818; Sveinbjörn Egilsson (1791–1852).

Franz X. Gruber, um 1820 (🔊 pdf nwc).

andlitsmynd
Franz X. Gruber
(1787–1863)

Heims um ból helg eru jól,
Signuð mær son Guðs ól,
Frelsun mannanna, frelsisins lind,
Frumglæði ljóssins, en gjörvöll mannkind
Meinvill í myrkrunum lá.
Meinvill í myrkrunum lá.

Heimi í hátíð er ný,
Himneskt ljós lýsir ský,
Liggur í jötunni lávarður heims,
Lifandi brunnur hins andlega seims,
Konungur lífs vors og ljóss.
Konungur lífs vors og ljóss.

Heyra má himnum í frá
Englasöng: Allelújá.
Friður á jörðu, því faðirinn er
Fús þeim að líkna, sem tilreiðir sér
Samastað syninum hjá.
Samastað syninum hjá.